Breska lúxusfyrirtækið (hvað orð er það?) er hugsanlega að setja á markað fartölvu sem á að kosta 1 milljón dollara (70 milljónir króna). Einungis ein mynd er til af tölvunni en upplýsingar eru um að áferðin á tölvunni er lík og á píanói. Skjárinn er 17″ og er með sérstakri glampafrírri húð og sjálfhreinsibúnaði. Harði diskurinn er 128GB SSD og það er Blu-ray diskaspilari.
“on” takkinn er auðvitað gerður úr demanti.

Kassinn á bakvið er einhverskonar geymsla fyrir tölvuna, lokið á honum rennur sjálfkrafa til hliðanna og tölvan kemur í ljós !!

http://www.youtube.com/watch?v=m-L8DvmNDpA