Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

iTurn

Ameríkanarnir kalla hann iTower en hvað um það. Þetta er flotturhátalarastandur fyrir iPodinn. Hann er um 130 cm á hæð og tekur lítið pláss á gólfinu, aðeins 25 cm. Ofaná er vagga fyrir iPodinn en innaní er upptrekkjanleg snúra sem þú getur sett í samband við vögguna sem fylgdi með spilaranum. Þannig er hann tengdur við tölvuna og hleðslu í einu.

Í turninum sjálfum eru 4 hátalarar og einn bassi sem er innbyggður, og segja menn að sándið sé þrælgott.

Þráðlaus fjarstýring fylgir

iturn

Græjan kostar $199 hjá Sharper Image

Comments are closed.