Fyrsta WiFi myndavélin frá Sony

Nýjasta myndavéin frá Sony er með þráðlausu WiFi korti þannig að hægt er að taka af henni myndirnar inní tölvuna þráðlasut. Nokkrir framleiðendur hafa nú þegar sett slíka vél á markaðinn en þetta er sú fyrsta frá Sony. Vélin heitir Cyber-shot DSC-G1 og er 6 megapixel og tengist með 802.11 b og g.

Vélin er með 3X optical aðdrætti og er skjárinn á henni sá stærsti á myndavél í sínum stærðarflokki eða 3,5″. Önnur stórfrétt er að það ersonyg1 innbyggt 2GB minni í vélinni sem ætti að duga fyrir mörg hundruð myndir í fullri upplausn, einnig er hægt að bæta við minnisplássi með Memory Stick Duo korti.

Ljósnæmið er ISO 1.000 sem ætti að gera hana góða við léleg birtuskilyrði.

Verðið í USA verður í kringum  $600 eða um 40.000 krónur.

Comments are closed.