Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Flott DJ græja

Pioneer hefur nýlega kynnt nýjan plötuspilara sem er aðeins tæknilegri en fyrri týpur. Hann heitir DVJ-1000 og getur spilað DVD hljóð og mynd-diska. Þetta gefur plötusnúðnum tækifæri til að skratsa grafík uppá sjónvörp á skemmtistöðum. Einnig er hægt að setja í hann SD kort með lúppum eða hljóðum (mp3) og mixa saman. Svo það flottasta við þetta er auðvitað hringurinn sjálfur þar sem hægt er að stjórna diskunum algjörlega, breyta hraða, skratsa og allskonar. Þar er hægt að breyta “tilfinningunni” líka svo maður fái nú rétta sándið. Svo er stór WAVE skjár fyrir allar upplýsingar.
dvj1000

Comments are closed.