Mercedes-Bens ætlar að frumsýna umhverfisvænan hugmyndabíl á bílasýningunni í Genf síðar í mánuðinum. Bíllinn er 170 hestöfl og togar 400 Nm og eyðslan er eins og fyrr segir um 5,4 lítrar á hundraðið. Bíllinn kallast Vision C 200 Bluetec.
Bíllinn stenst staðalinn EURO 6 sem tekur gildi árið 2015. Allir Diesel bílar frá Benz standast nú þegar kröfurnar sem EURO 5 segir til um en þær taka gildi árið 2011. EURO 6 staðallinn á þó að gera enn betur og draga úr nitur útblæstri um 2/3.

“Þessi fjögurra strokka diesel vél er gott dæmi um tækni framtíðarinnar og hvernig Bluetec tæknin setur okkur í leiðtogasæti í umhverfismálum” segir Dr Dieter Zetsche, framkvæmdastjóri DaimlerCrysler AG. Hann heldur áfram, “Stefna okkar í þróun á diesel vélum svarar spurningum um hvernig skuli spara eldsneyti og minnka útblástur á koltvíoxíð og öðrum efnum. Jafnframt eru þægindi við akstur ekki sett á hakann. Þess vegna teljum við okkar lausn þá bestu og skilvirkustu sem er í boði í dag”

Síðustu komment