Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Apple TV fær ágæta dóma

Krakkarnir hjá Engadget eru búnir að prófa nýja Apple TV-ið sem lengi hefur verið beðið eftir. Þetta þykir hin fínasta græja en gallarnir eru nokkrir. Á meðal kosta sögðu þeir að uppsetning og upphafsskrefin væru mjög auðveld. Allt viðmót er eins og í iTunes enda er það notað sem aðal stjórntækið. Einnig eru gæðin góð, hraðinn mjög góður og t.d. ljósmynda-showið rosaflott.

Gallarnir eru hins vegar þeir að maður verður að vera með WideScreen sjónvarp og verða sjónvarpsþættir og tónlistarmyndbönd frekar asnaleg í laginu eftir að búið er að skala það niður í 720punkta. Einnig er galli að ekki er hægt að horfa á .avi fæla í sjónvarpinu !! Maður verður að umbreyta þeim í H.264 staðalinn sem iPod (og iTunes) notar. Þetta er einmitt staðallinn sem iTunes verslunin í USA selur myndirnar sínar í. iTunes verslunin er auðvitað ekki aðgengileg frá Íslandi. Umbreytingin á gamla myndasafninu sínu tekur svo langan tíma að maður nennir engan veginn að standa í því.

Svo er það verðið. Apple búðin segir að Apple TV muni kosta 39.900 og koma um miðjan apríl.

aTV

Comments are closed.