Bandrískt fyrirtækið T3 Motion kynnti á dögunum nýtt lögguhjól eða löggufarartæki. Tækið er þriggja hjóla rafmagnstæki sem kemst í 30 km hraða og eyðir rafmagni fyrir 10 krónur á dag!!
Tækið kostar bara rúman 500.000 kall þannig að má búast við að mæta öryggisvörðunum í Smáralind á svona græju fyrir jólin.
Hópur japanskra uppfinningamanna hefur sent frá sér nýja tegund af rafhlöðu. Rafhlaðan er úr sérstakri tegund af plastefnum og hægt er að hlaða hana á aðeins 60 sekúndum allt að 1000 sinnum.
Rafhlaðan er aðeins um 200 nanometrar á þykkt og er algjörlega glær sem opnar mikla möguleika. Í framtíðinni mætti sjá hana sem hluta af [...]
Breska lúxusfyrirtækið (hvað orð er það?) er hugsanlega að setja á markað fartölvu sem á að kosta 1 milljón dollara (70 milljónir króna). Einungis ein mynd er til af tölvunni en upplýsingar eru um að áferðin á tölvunni er lík og á píanói. Skjárinn er 17″ og er með sérstakri glampafrírri húð og sjálfhreinsibúnaði. Harði [...]
Krakkarnir hjá Engadget eru búnir að prófa nýja Apple TV-ið sem lengi hefur verið beðið eftir. Þetta þykir hin fínasta græja en gallarnir eru nokkrir. Á meðal kosta sögðu þeir að uppsetning og upphafsskrefin væru mjög auðveld. Allt viðmót er eins og í iTunes enda er það notað sem aðal stjórntækið. Einnig eru gæðin góð, [...]
Ameríkanarnir kalla hann iTower en hvað um það. Þetta er flotturhátalarastandur fyrir iPodinn. Hann er um 130 cm á hæð og tekur lítið pláss á gólfinu, aðeins 25 cm. Ofaná er vagga fyrir iPodinn en innaní er upptrekkjanleg snúra sem þú getur sett í samband við vögguna sem fylgdi með spilaranum. Þannig er hann tengdur [...]
Sumir hlutir haldast óbreyttir svo áratugum skiptir. Oftast vegna þess að hönnunin er góð og þeir virka. Hamarinn hefur til dæmis verið eins í langan tíma, en nú hefur Douglas Tools kynnt nýjan hamar sem á að vera sterkari og öflugri. Kannski er hann bara sniðugur fyrir smiði sem vantar eitthvað nýtt til að spjalla [...]
Nýlegar athugasemdir