Stundum koma hlutirnir nokkrir í einu. Tvö önnur þríhjól hafa verið kynnt nú stuttu eftir að hjólið hér á undan hjól var kynnt. Þetta eru hjólin Silence PT2 og VentureOne.
Þau eru kannski með aðra hugsun að leiðarljósi. Þau eru bæði “umhverfisvæn”.
Silence PT2 er þriggja hjóla rafmagnsfarartæki. Reyndar nokkuð flott græja, með háglansandi lakki og nýtískulegri innréttingu. Hægt er að aka um 180 til 400 km á einnri hleðslu. Hámarkshraðinn á að vera í kringum 180 km/klst. Verðið er um 3 millur ISK í USA. (yfir 5 millur heimkominn)

Svo er það VentureOne. Hann er aðeins öðruvísi, með eitt hjól að framan og tvö að aftan. Hann hallar sér inní beygjurnar með hjálp tölvukerfis frá Carver Engineering. Um borð er veltibúr, loftpúðar og margt líkt venjulegum bíl. Þó er þetta skráð sem mótorhjól og það þarf mótorhjólapróf til að aka þessu. 3 komast fyrir inni. Hægt er að fá bensín/rafmagns útgáfu eða bara rafmagnsútgáfu. Með litlum bensínmótor eyðir hann innan við 1 lítra á hundraðið en rafmagnsgræjan kemst yfir 300 km á hleðslunni. Verðið er aðeins 1,3 millur fyrir blendinginn en 1,6 fyrir rafmagnsbílinn.


Síðustu komment