Margir taka inn pillur vegna þess að sársaukinn við nálarstungur er svo mikill. Nýtt ísraelskt fyrirtæki hefur hafið framleiðslu á nýju tæki sem á ða útrýma sársauka við nálarstungu. Þetta er gert með nýju tæki sem einfaldlega fer svo stutt inní húðina að það nær ekki að sársaukataugunum. Aðferðin er kölluð MicroPyramids og í hana eru notaðir sílikon kristallar sem eru settir upp sem örnálar sem eru minni en 1 mícrometer á breidd. Þeir segja að þetta sé algjörlega sársaukalaust og ætti því að geta hjálpað ungum sem öldnum sem fá aðsvif þegar nálin nálgast. Eins og sést á myndinni er svo nafnið á öllu saman NanoPass.


Síðustu komment