Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

630 hestafla Porsche

Þar sem talsvert kapphlaup um flottasta Porsche-inn er í gangi í góðærinu um þessar mundir, er líklegt að einn svona sjáist á götum Reykjavíkur í sumar. Þetta er Porsche 911 Turbo (997 boddý) sem tjúnararnir hjá TechArt hafa dundað sér aðeins við. Bíllin er 680 hestöfl en var aðeins 480 frá verksmiðjunni. Togið hefur einnig verið aukið úr 620 í 820 Nm (váá) við 4.500 rpm.

Bíllinn á að ná 100 km hraða á 3,2 sekúndum og 200 km hraða á 10.9 sek.
Einnig hefur loftflæðið verið bætt með nýju kitti sem á að reyna að halda þessari skepnu nær veginum.

911techart

1 athugasemd við 630 hestafla Porsche

  • Vinur

    Ég frétti nú af einum svipuðum þessum sem valt uppá Höfða um helgina. Mér skilst að einn af eigendum Bílabúðar Benna hafi verið að keyra, Jón bróðir Benna. Þá eru bræðurnir báðir búnir að rústa tjúnuðum 911 bílum. Góðir.,,,