Sjónvarpið geymt undir rúmi

Þetta nýstárlega tæki frá Ameríku er kærkomið inná hvert heimili. Hver vill ekki hafa 50 tommu plasma tæki alveg við rúmið sitt? Hver vill ekki geta smellt einnri nettri spólu í tækið svona rétt fyrir “svefninn”?

Allavega er þetta sniðug hönnun. Reyndar tekur tækið um 45 sek að komast upp en kostirnir eru líka margir. Flott er hvernig tækið snýst þegar það er komið upp. Hægt er að setja 50″ tæki undir King Size rúm og 42″ tæki undir Queen Size. Aðeins þarf um 20cm hæð undir rúminu til að tækið komist fyrir. Hægt er að hafa DVD spilarann einnig undir rúminu.

mk1
Fyrirtækið Mk1Studio framleiðir líka lyftur til að fela hátalara, skjávarpa og hvað sem er í fölskum loftum. Hér má sjá hátalara koma niður úr loftinu.
mk12

Engin verð eru gefin upp. Ef þú þarft að spyrja, hefurðu ekki efni á þessu.
Mk1studio.com

Comments are closed.