Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Bang & Olufsen kynna nýja hátalara

Danska hátæknifyrirtækið Bang & Olufsen er að koma með nýja hátalara í vöruúrvalið hjá sér. Þessir eru líklegir til að kosta á við notaðan kóreskan bíl en engu að síður skemmtilegir á að horfa (og vonandi hlusta). Verðið í Bandaríkunum er um 700.000 krónur.
b9_3
BeoLab 9 eru sannarlega með lúkkið með sér, hafa mjög sérstaka kóníska lögun. Inní kóninum er 5 tommu miðja og 10 tommu bassi og tweeterinn er svo efstur og breiðir tóninn út í 180 gráður. Hátalararnir eru með Acoustic Lens Technology frá fyrirtækinu sem “tryggir” sama ótruflaða hljóðið hvar sem er fyrir framan hátalarana, þó svo hlustandinn færi sig um set.

Bang&Olufsen nota tæknina Adaptive Bass Linearisation tecnology til að ná tónum allt niður í 30Hz og ætti því engin þörf að vera fyrir bassabox.
Hátalarnir koma í nokkrum litum sem má sjá hér fyrir neðan.

Lesa meira af Bang & Olufsen kynna nýja hátalara

Tesco ætlar að byggja stærstu sólarrafhlöðu í heimi

Breski smásölurisinn Tesco ætlar að byggja stærstu sólarrafhlöðuþak í heimi á nýtt vöruhús sitt í Californiu í Bandaríkjunum. Húsið kostar alls tæpan milljarð króna og fékk Tesco Solar Integrated Technologies í lið með sér til að hanna þakið.  Tesco segir að þakið muni afla um 20% af orkuþörf hússins og spara um “1200 tonn [...]

Slædkassi

Fyrir 50 þúsund kall er hægt að fá þennan skemmtilega kassa í bílinn. Þetta er tölva og GPS tæki sem mælir allan fjandann. Hún mælir hraða, hröðun, slæd og fullt af skemmtilegu dóti. Þú getur borið saman hraðan hring í braut við Google Earth og lesið úr línunni hjá þér. Einnig geturðu séð hversu [...]

Great minds think alike....

Það hlaut að koma að því….einhver varð að herma eftir iPhone og ekki tók það nema 9 daga að kynna fyrsta símann sem lítur nánast eins út. LG kynnti símann sem KE850 Prada og er hann gerður sérstaklega fyrir Prada, sem er fataframleiðandi ríka fólksins. Þeir kynna hann með stolti sem “fyrsti farsíminn [...]

Þessi er líkleg til vinsælda

Við sýndum ykkur brauðrist fyrir nokkrum vikum sem vakti þónokkra athygli. Nú er komin endurbætt útgáfa af nánast sömu græjunni en það er “Toast automatica” sem snillingurinn George Watson sem hefur hannað þetta. Myndin segir sig nú bara sjálf en til upplýsinga er aðeins einn takki á vélinni, sá sem ræður hraðanum á mótornum [...]

Þvottavél sem endurvinnur vatn

Vélin heitir AQUA og er frá Sanyo. Hún er með tank sem kallast Aqualoop sem geymir 50 lítra af vatni fyrir næsta þvott.

Einnig í vélinni eru möguleiki sem kallast Air Wash, en þar er hægt að þvo föt sem vanalega fara í hreinsun. Þar baðar vélin fötin úr lyktar og bakteríudrepandi efnum og [...]

Blaðsíða 3 af 612345...Síðasta »