Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Ný tegund harðra diska gefur ný tækifæri

Tölvuframleiðendur hafa beðið eftir stökkbreytingum á tækninni svo þeir geti farið að hugsa útfyrir boxið. Nú hafa tveir risar tilkynnt nýja tegund af hörðum diskum sem setja ný viðmið. Samsung kynnti þennan Solid State Disk (SSD) í fyrradag en hann er 16Gb.

ssd16

SanDisk sem eru stærstir í heiminum í minniskortum toppuðu þessa tilkynningu í gær. Þeir kynntu 32Gb SSD sem er alvöru tæki. Tækið er 4.5 cm á breidd og er stöðugur leshraði 62Mb á sekúndu en flettihraðinn er 7000 in/út á sekúndu sem er um 100 sinnum meira en flestir harðir diskar. Fyrir utan þetta er hann algerlega hljóðlaus. Stærsta skrefið er verðið sem er gefið upp $600 sem er helmingurinn af því sem áður hefur þekkst.

Þess vegna mega menn fara að búast við verulega þunnum, léttum, hljóðlátum fartölvum þar sem batteríið dugar miklu lengur. Einnig má búast við mjög öflugum farsímum og allskonar blöndu á milli síma og tölva.

ssd32

Comments are closed.