Stundum nennir maður ekki útí rigninguna með hvuttann, þá er gott að eiga eina svona til að grípa í svo hundurinn verður ekki pirraður. Hlaupabrettið er ekki ólíkt því fyrir mennina nema hvað það er minna og með hliðarveggjum til að minnka slysahættu. Hægt er að stilla hraðann frá 0-5 km/klst og binda ólina við tækið. Einnig er auðvelt að brjóta það saman og geyma eða ferðast með.
Græjan kostar ekki nema 9 þúsund kall í USA.


Síðustu komment