Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Kemur iTV frá Apple í þessum mánuði?

Apple hefur tilkynnt um að þeir ætli að setja iTV á markað en ekki gefið tímasetningu á tækið. Nú lítur út fyrir að tíminn sé kominn. Hvort sem nafnið iTV verður notað eða ekki mun græjan mæta í hilluna í Apple búðum í janúar eða í byrjun febrúar samkvæmt nýjustu fréttum. Hugsanlega verður formleg tilkynning á MacWordExpo sýningunni í næstu viku.
itv

iTV er tæki sem sýnir allar myndir og spilar tónlist í venjulegu sjónvarpstæki. Miklir tengimöguleikar eru á græjunni t.a.m eru þráðlaust netsamband við allar tölvurnar í húsinu þannig að þú getur spilað bíómynd af tölvu sem er í öðru herbergi. Einnig er talað um að streyma myndir beint frá iTunes (gegn gjaldi) en það hefur ekki verið staðfest.

Apple ætlar sér stóran hlut af kvikmyndakökunni, eins stóran og þeir hafa nú af tónlistarkökunni, þannig að vandað verður til verka með þetta tæki. Samningar við Disney hafa verið ræddir en ekki staðfestir.

Tækið keyrir á sérstakri útgáfu af Mac OS stýrikerfi og hefur tengimöguleika við gamla imbakassa og nýjustu HD plasma tækin (HDMI).

itv back

Comments are closed.