Buffalo kynnti nýja árgerð af LinkTheater línunni sinni í dag. LinkTheater Wirelss A&G Media Player PC-P4LWAG. Þetta er sem sagt tæki sem þú hefur við sjónvarpið þitt til að sýna í því myndir sem geymdar eru í tölvunni þinni eða á hörðum disk (svipað og iTV frá Apple). Hægt er að tengjast við það þráðlaust yfir 802.11a/g, ethernet og USB 2.0.
S-video, D4 og fleiri útgangar eru svo í græjunni. Stýrikerfið er Mediabolic og styður það spilun á MP3, WMA, AAC hljóðskrám og MPEG 1/2/4, WMV 7/8/9, XviD og h.264 myndskrár.


Nýlegar athugasemdir