Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Fleira til að trufla þig við aksturinn

Bandaríski bílaframleiðandinn Ford hefur tilkynnt að Blue&Me kerfið (áður frá Fiat) verði í boði í 12 tegundum af 2008 árgerðunum í haust undir nafninu “Ford Sync”. Í kerfinu er hægt að tengjast við farsíma í gegnum Bluetooth og við Mp3 spilara í gegnum A2DP / AVRCP og USB2.0 tengi. Þó svo búnaðurinn sé framleiddur af Microsoft þá er tengi fyrir iPod. Svo er auðvitað tengi fyrir Zune, en hver á svoleiðis?
Raddskynjari er í kerfinu og hægt verður að skipta á milli laga, hljómplatna og listamanna með raddskipunum. Einnig er hægt að hringja í fólk með því að segja nafn þeirra eftir að hafa ýtt á takkann “Push to Talk”. Eitt það frumlegasta er þó að tækið les fyrir þig SMS skilaboð og segja Ford menn að það skilja SMS tungumál eins og LOL og :)
USB tengi verður á tækinu til að hlaða inn gögn og til að hlaða iPod spilara og fleiri tæki

fordsync

Tekið af media.ford.com

Comments are closed.