Batterísframleiðandinn Duracell er kominn með skemmtilega nýjung á markaðinn. Þetta er tæki sem er smellt aftaná iPod og er í senn aukabatterí og FM-sendir. Batteríið rúmlega tvöfaldar spilunartímann og FM sendirinn er með óendanlega mörgum stöðvum. Ekki þarf að taka tækið af iPodinum ef maður ætlar að tengja einhverja aðra aukahluti við hann.
Græjan er nú þegar til fyrir iPod Nano og fæst í vor fyrir iPod Video.


Síðustu komment