108 tommu sjónvarp !

Fyrir tæpum mánuði síðan sögðum við frá 103 tommu plasma skjá frá Panasonic en nú hefur Sharp gert enn betur. 108 tommur LCD sjónvarp var kynnt á CES sýningunni í Las Vegas í dag.

Skjárinn er 235cm á breidd og 132 cm á hæð og er með Black Advanced Super View Full-Spec HD LCD skjá sem er framleiddur í Kameyama í Japan.

Sharp þróaði fyrsta LCD litasjónvarpið í heimi fyrir nokkrum árum, reyndar var það árið 1988 og var sjónvarpið 14 tommur ;) Þeir hafa náð fleiri stærðarmetum síðan ‘88 en þeir kynntu 45 tommu LCD árið 2004 og svo fyrstu 65 tommuna.

Skjárinn er ekkert slor heldur, hann er með 4 sinnum meiri upplausn en það sem telst vera HD í dag (4096 x 2160) og contrast ratio-ið er 1.000.000:1. 120 riða vinnsla og 4ms svörun.

108tom

10 comments to 108 tommu sjónvarp !