Kanadíska fyrirtækið AlphaShield hefur kynnt til sögunnar nokkuð öflugan router. Hann er sagður ná yfir 350 metra innandyra og yfir 1150 metra utandyra. Þetta á að sjálfsögðu við bestu aðstæður. Þeir kalla tæknina Power-G en þetta mun vera um 20 sinnum meiri vegalengd en venjulegur router nær.
Hraðinn á græjunni er 108mps og það eru 5 ethernet port á honum auk þess sem það er eldveggur, prentþjónn og VPN stuðningur.
Verslanir í USA búast við græjunni í hillurnar hjá sér í Janúar og verðinu í kringum 15.000 ísl kr.


Síðustu komment