Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Ljótasti sími í heimi

Í skemmtilegri tilraun til að búa til lúxus GSM síma mistókst fyrirtækinu VERTU hressilega. Þessi sími er með 2 stóra demanta, 2 smargaða og 439 rúbísteina í slöngulíki. Allt þetta er límt á einhvern fáránlega lélegan síma og uppsett verð er 22 milljónir. Sem betur fer voru aðeins 8 stykki framleidd en þeir eru að spá í ódýrari útgáfu sem á að kosta aðeins 9 milljónir. Sú á að vera framleidd í 26 eintökum.

Vantar einhvern jólagjöf handa frúnni á síðustu stundu???

vertu-cobra

3 comments to Ljótasti sími í heimi

  • Baddi

    Þetta er hreinn og klár viðbjóður. ég held að Victoria Beckham ætti að fá sér einn hahaahahahaa

  • Halldór

    Hahahaha!

    VERTU cool!

  • Maggi

    Vertu símar eru mjög vinsælir útí heimi. Og framleiða þeir síma eins og kúnninn vill fá þá líka. Þú getur látið þá sérsmíða síma og þeir geta látið allt sem þú vilt í símann (í hófi)

    Og það má geta þess að þessir 8 símar seldust fljótt upp, enda 22 millur lítill peningur útí hinum stóra heimi.