Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

LG kynnir næstu kynslóð fartölva

Fartölvur hafa verið nánast óbreyttar síðan á níunda áratug síðustu aldar. Jú, auðvitað hefur hraðinn og afkastagetan aukist en hönnunin er nánast eins. LG hefur hannað algjörlega nýja fartölvu. OLED skjár er notaður í staðinn fyrir LCD skjáinn sem allir nota í dag, og er enginn rammi í kringum hann. Einnig er sagt að hann noti mun minna rafmagn. Orkugjafinn í vélinni er einnig nástárlegur fyrir fartölvu en það er metanól (alkóhól!!). Tölvan hefur nú þegar unnið þýsk hönnunarverðlaun enda ekkert skrítið af myndinni af dæma. Tölvan er gullfalleg og hlýtur að vera öflug að sama skapi. Eina sem þarf að breyta fyrir útgáfu er nafnið, sem nú er ebook sem er afskaplega klisjukennt.
Verð og útgáfudagur eru ekki ákveðin, en James Bond hlýtur að fá fyrsta eintakið ef maður þekkir hann rétt.ebook

Comments are closed.