Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

KTM smíðar bíl í samstarfi við Audi

Austurríski sport-mótorhjólaframleiðandinn KTM hefur sýnt teikningar af X-Bow bílnum sínum. Bíllinn er hannaður og smíðaður í samstarfi við Audi. Grindin er smíðuð af KTM en vélin ofl. er úr Audi. Vélin er 220 hestöfl.

Viðræður eru við Magna Steyr verksmiðjuna um fjöldaframleiðslu en í upphafi verða bara 100 eintök smíðuð. Bíllinn verður kynntur opinberlega á Bílasýningunni í Genf í mars. X-Bow(crossbow) er aðeins vinnuheiti á bílnum og óvíst hvað nafnið verður.

Hljámarnir sem sjást á myndinni fylgja með bílnum en þeir eru meira fyrir lúkkið og til að verjast flugum en öryggishjálmar

ktm

Nýjar fréttir 2.feb 07: KTM hefur slitið samstarfinu við Audi og ætlar að byggja bílinn á eigin spýtur. Þeir gátu ekki sætt sig við kröfur Audi um loftpúða og eitthvað fleira en KTM vildi halda léttleikanum í fyrirrúmi. Bíllinn verður samt sem áður með vél og gírkassa frá Audi.

Fleiri myndir hér fyrir neðan

ktm2ktm1

ktm3

ktm4

Comments are closed.