Sony í Japan hefur hafið sölu á viðbót við hina geysivinsæla lófa-leikjatölvu PSP. Það er GPS móttakari sem er aðeins um 4,5 cm á stærð og aðeins 16 grömm á þyngd.
Tækið er að sjálfsögðu hágæðaútgáfa af hinum þekktu GPS tækjum eins og við þekkjum þau. Til viðbótar eru komin fyrir Japansmarkað:
Golf-jou: Kort af öllum helstu golfvöllum í Japan, tækið gefur upp fjarlægðir frá hindrunum og holunni. Einnig er hægt að nota tækið til að muna fjölda högga.
Metal Gear Solid: Hægt er að nota tækið til að finna nýja kalla sem hægt er að kalla í herinn til sín.
Navigation: Þessi venjulegu kort fyrir bílinn og gönguferðirnar. Hægt er að finna áhugaverða staði og bensínstöðvar auðveldlega. Kortin eru uppfærð í gegnum netið.
Tækið kom í búðir í Japan í dag og kostar aðeins um 3600 krónur. Vonandi kemur það í Evrópu fljótlega á næsta ári.


Tækið er aðeins 45×41x17 mm

Nýlegar athugasemdir