Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Gibson setur digital gítar á markaðinn

Hinn heimsþekkti gítarframleiðandi Gibson hefur sett stafrænan gítar ár markaðinn undir hinu stórskemmtilega nafni HD.6X-Pro.
Um talsverða nýjung er að ræða þar sem gítarinn er tengdur við magnara eða tölvu með Cat5 snúru í stað þeirrar gömlu. Gítarinn sendir frá sér átta rásir af hljóði, þ.e. eina fyrir hvern streng og svo eina fyrir alla strengina samanlagt (venjulegt merki) og svo eina fyrir mic merki. Einnig býður kerfið uppá að tvær rásir séu sendar tilbaka uppí gítarinn svo gítarleikarinn geti hlustað í stereo á hljóðið sem búið er að vinna.

Öll vinnslan fer fram í gegnum svokallað Breakout box sem er einskonar effect og hljóðvinnslukassi. En ef þér leiðist orðið öll tæknin geturðu sett gömlu gítarsnúruna í samband og spilað á gamla mátann.

Gítarinn kostar um 350 þús í Bandaríkjunum. Hægt er að fá sérstaka Les Paul útgáfu sem kostar næstum tvöfalt.
Gibson

2 comments to Gibson setur digital gítar á markaðinn

  • Þú segir í fréttinni að þetta séu átta rásir þ.e. ein fyrir hvern streng og ein fyrir alla saman.Þetta er ekki rétt nema að þetta sé 7 strengja gítar og ég sé ekki nema 6 á myndinni.Eðlilegir gítarar eru með 6 strengi ef þú veist ekki neitt um gítara..

  • Halldór

    Gítarinn sendir frá sér átta rásir af hljóði, þ.e. eina fyrir hvern streng og svo eina fyrir alla strengina samanlagt (venjulegt merki) og svo eina fyrir mic merki.

    Kommon! Lesa betur!