Batteríslaus gangráður

gangradur
Að fara í aðgerð á sjö ára fresti til að skipta um batterí í gangráði mun líklega heyra sögunni til fljótlega.

Breska ríkisstjórnin og einkafyrirtæki hafa fjárfest um 130 milljónum króna í verkefnið sem er unnið af Zarlink Semiconductor. Notast er við hreyfingu mannsinns til að knýja tækið.

Ljóst er að þetta verkefni mun hafa gríðarleg áhrif á læknisfræðina en ekki bara á fólk með gangráða þar sem hugmyndin er að nýta þessa tækni í fleiri verkefnum. Mörg þúsund manns eru með gangráða og kostar það heilbrigðiskerfið um 1,3 milljónir króna að skipta um batterí í hvert skipti.

Breska heilbrigðisráðuneytið reiknar með að tækið muni ekki bara auka lífsgæði þeirra sem á þurfa að halda heldur einnig auka hagvöxt í landinu.

1 comment to Batteríslaus gangráður

  • Kolbrún Þóra

    Var svo ánægð að sjá þessa síðu og hélt að þetta væri að gerast í dag. En sorrý fyrir okkur sem kosta heilbrigðiskerfið á aðra milljón að fá annað batterí þá er ekkert að gerast í þessum málum.
    Það er mjög óþægilegt að lenda í því að batteríið sé nánast búið ég lenti í því og var að fara erlendis. En þökk sé okkar heilbrigðiskerfi þá gekk það og kanski get ég farið ferðina mína .