Kleer er ungt fyrirtæki sem hefur fengið einkarétt á nýrri tækni sem virðist vera mun hentugri í þráðlausa sendingu á hljóði heldur en Bluetooth. Aðalmunurinn felst í því að rafmagnsnotkun er aðeins 10% af því sem bluetooth tækin nota, þannig að batteríin ættu að duga 10 sinnum lengur. Hljómgæðin eiga að vera þau sömu og þekkjast úr hágæða heyrnatólum nútímans og hugsanlega mun verða auðveldara að búa til surround kerfi heima hjá sér þegar allir hátalarnir geta verði þráðlausir.
Vörurnar ekki enn komnar á markað en myndin sýnir hvað er verið að hugsa um. Spurning hvort nýji iPhone síminn frá Apple verði með svona þráðlausu kerfi þar sem Kleer fyrirtækið er staðsett í Cupertino eins og Apple??


Síðustu komment