Hljóðlaus farþegaþota

Hópur sérfræðinga frá MIT í Boston og Cambridge í Bretlandi hafa sent frá sér frum-teikningar af flugvél sem ætti að geta flogið án hávaðamengunar fyrir fólk á jörðu niðri. Vélin er einnig gríðarlega eyðslugrönn á eldsneyti.

Þónokkrar vélar hafa verið hannaðar í gegnum tíðina þar sem vængurinn og búkurinn eru samvaxin á svo stóru svæði að talað er um að vélin sé vængurinn, t.d. B2 sprengjuvélin. Öll vélin sér um að framleiða ‘lift’ svo möguleikinn er að fljúgja hægar í aðflugi og brottflugi, sem krefst minni orku og þ.a.l. minni hávaða. Engir flapar eru á vélinni og mótorarnir eru innan í búknum en hanga ekki utaná eins og á þotum sem við þekkjum í dag.
Vélin er hönnuð miðað við taka 215 farþega og komast 124 farþegamílur á gallonið en Boeing 787, sem verður frumsýnd 2008, stefnir á að ná 100 farþegamílum á gallonið.
Hugmyndin er svo sem góð en sérfræðingarnir eru hæfilega bjartsýnir á að vélin verði hönnuð til fulls árið 2030.

Jet

Comments are closed.