Er það heimsmet? Að selja alla bílana sem á að framleiða á 92 sek. Það hlýtur að vera. Enda er bíllinn ekkert slor. Upphaflega er bíllinn BMW M6 blæjubíll en Neiman Marcus hefur aðeins frískað uppá gripinn. Lakkið á bílnum er sérstakt Rúbí-svart og hlutir í innréttingunni eru sprautaðir með Píanó svartri málningu. Sportsætin er gull-brún Merino leðursæti sem er stjórnað með rafmagni.
11 hátalarar eru í bílnum og er sérstakt surround kerfið er ótrúlega fullkomið og hljómhreint.
Stýrið er sérsmíðað og fleira og fleira.
Vélin er V10 og skilar 500 hestöflum.
Verðið í USA var $139.000 og seldist öll framleiðslan uppá 50 bíla upp á 92 sekúndum


Geeeggggjaður bíll. Ég hefði viljað einn.
Fær bara fullnægingu við að lesa textan!!!!! uhhhhh…..