Hópur fjárfesta hefur sett 5 milljónir dollara í að hanna kerfi sem sýnir upplýsingar á framrúðunni í bílum.
Myndinni er varpað uppá neðri hluta framrúðunnar og gefur upplýsingar um hraða, eldsneyti, snúning vélarinnar, útvarpið osfrv. Markmiðið er að gera svipað og BMW hefur gert með iDrive en koma því uppá framrúðuna. Þannig á að halda augum ökumannsins á veginum.
Nú er hægt að fá BMW M5 og M6 með skjá en fjárfestarnir Jonathan Fram og Howasr Schultz vilja fara alla leið. Þeir vilja fá allt uppá framrúðuna eða eins og þeir segja: “Er ekki betra að sjá tölvupóstinn sinn á framrúðunni í staðinn fyrir að leika sér í BlackBerry á meðan maður keyrir?”


Síðustu komment