Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Honda þotan komin á loft

Þá er hin glæsilega Honda Þota komin á loft. Þotan er nýstárleg hönnun á einkaþotu í svokölluðum Very Light flokki. Þotan hefur sæti fyrir 6 farþega og dregur rétt rúma 2000 km (Reykjavík-London=1900km).

Að venju fer Honda ekki troðnar slóðir í hönnun á þotunni. Til að mynda eru mótorarnir ofan á vængjunum sem leiðir til minni notkunar á styrktarbitum í skrokknum sjálfum og meira innanrýmis. Flugstjórnarklefinn er mjög hreinlegur og er nánast öllu stjórnað með snertiskjám nema sjálfu stýrinu og eldneytisgjöf.

Sjá nánar á heimasíðu Honda.
HondaJet

Comments are closed.