BMW hefur tilkynnt að þeir muni sýna tilbúinn vetnisbíl á bílasýningunni í Los Angeles í næsta mánuði. Bíllinn heitir BMW Hydrogen 7. Þeir ætla að framleiða 100 bíla á næsta ári. BMW mun sækjast eftir sérstökum aðilum víðsvegar um heiminn til að prufa bílana fyrir sig, þannig að möguleiki er að einhverjir bílar komi til Íslands þar sem vetnisstöð er í Reykjavík.
Í bílnum eru tveir eldsneytistankar, annar fyrir vetni og hinn fyrir venjulegt bensín. Þú getur valið á milli orkugjafa á ferð eða sér bíllinn um það sjálfkrafa fyrir þig. Þetta er sama hugmyndafræði og er í notkun á nokkrum tvinn-bílum í dag eins og Toyota Prius.
Keppinautarnir eru skyldir eftir í rykmekkinum. DaimlerChrysler hefur aðeins kynnt ókláraða hugmyndabíla og General Motors tilkynnti nýlega að þeir ætlað að byrja sölu á vetnisbílum árið 2011.


Síðustu komment