Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Þráðlaus og batteríslaus

Nýjasta undrið á markaðnum er frá A4Tech í Kóreu. Þeir eru búnir að leysa hið hvimleiða vandamál með þráðlausa mús sem verður batteríslaus. Músin er knúin af hreyfingunni sem notandinn hreyfir hana. Músamottan leikur þar stórt hlutverk en hún er segulmögnuð og er stungin í samband við USB til að fá orku. Músin er með 7 tökkum og skrunhjóli en svo er bara spurning hvort öll hendin á mann verði rafmögnuð eftir erfiði dagsins…

mús

1 athugasemd við Þráðlaus og batteríslaus

  • ég skil nú ekki alveg tilgangin með þessari mús að vera þráðlaus, þar sem hún þarf að vera við músamottuna til að virka