Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Sólarrafhlöður er líka úr sílikoni

Bændurnir í Sílikondal ætla að leggja áherslu á nýjan búskap í framtíðinni. Framleiðslu á sólararfmagni.

Eftir að hafa verið lengi í hátækniiðnaði eru verkfræðingar og frumkvöðlar í Sílikondalnum farnir að leita á nýjar slóðir. Þeir sjá tækifæri í að leggjast á eitt með að þróa áfram framleiðslu rafmagns með sólar-sellum en hingað til hefur það rafmagn verið umtalsvert dýrara en það sem fæst með brennslu á kolum og gasi. Sílikonmenn reikna með að veltan á sólarrafhlöðum eigi eftir að fimmfaldast á næstu tíu árum úr 11 milljörðum dollara í 51 milljarð. Það er ástæðan fyrir áhuganum. Nú er lagt kapp á að lækka kostnað, auka framboð og nýta þá tækni sem er til staðar.

Thomas Warner

Vel gengur að fjármagna uppbygginguna og hefur hvert hlutafjárútboðið á fætur öðru gengið upp. Fyrirtækið SunPower hefur sett upp verksmiðjur á Filipseyjum þar sem 1300 manns vinna en 100 manns vinna við hönnun í Sílikondalnum. Einnig hafa fylki í Bandaríkjunum ákveðið að styrkja þá sem koma sér upp sólar- og vindknúnum rafölum. Takmarkið hjá Kaliforníufylki er að minnka gróðurhúsalofttegundir um 25% á næstu 14 árum og treyst verður á sólarorkuna til að taka við af rafmagnsframleiðslu af gasi og kolum. Einnig ætla þeir miklar útflutningstekjur af tækninni.

Comments are closed.