Íþróttavöruframleiðandinn NIKE hefur hannað og sett á markað í samstarfi við Bausch&Lomb linsur sem henta vel fyrir íþróttamenn. Þessar linsur koma í tveimur litum og er hvor litur hentugur fyrir vissar aðstæður. Grá-grænar eru hentugar fyrir golf, hlaup, þjálfun og útiveru en appelsínurauðar fyrir fótbolta, tennis og fleiri íþróttir. Linsurnar hafa verið prófaðar af íþróttamönnum í Bandaríkjunum undanfarin misseri og hafa þeir látið vel af þeim. Sérstaklega þar sem litirnir í linsunni ýkja
mismun lita í umhverfinu (contrast) þannig að þú sérð mishæðir í golfvellinum betur, boltann fyrr í fótbolta og svo framvegis. Svo góðar eru linsurnar að ýmis íþróttasambönd hafa látið gera rannsókn á því hvort þær séu löglegar.

Linsurnar henta bæði fyrir þá sem þurfa styrkleika eða ekki. Einnig henta þessar linsur fyrir fólk á ferðinni hvort sem er á sólríkum degi eða á ferðalagi á jökli, en eins og margir vita er hægt að fá rafsuðublindu á sólríkum degi á jökli.


Nýlegar athugasemdir