Wendelin Wiedeking tilkynnti á dögunum að þeir hjá Porsche væri byrjaðir að prófa nýjan 4 dyra coupe í þessari viku. Bíllinn hefur verið kallaður Panamera og er líklegur til að vera kynntur formlega til sögunnar á bílasýningunni í Genf árið 2009.
Eitthvað verður fengið að láni úr hönnuninn á 911 bílunum en samt eru veigamiklar breytingar þar á. Vélin er frammí. Reiknað er með 3 tegundum af vélum í upphafi. 300 hestafla 6 strokka vél frá Volswagen (3,5 L) og svo 2 átta strokka vélar úr Cayenne bílnum, þ.e. 350 hestafla og svo turobo vélin sem er 560 hestöfl.
Stóra spurningin er sú hvort Porsche nái aftur að þagga niður í efasemdaröddum sem þegar hafa hljómað. Þeir náðu því með Cayenne jeppann, en tilhugsunin um 4 dyra fjölskyldubíl frá Stuttgart er ekki alveg búin að ná hljómgrunni hjá manni…




Nýlegar athugasemdir