Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

16GB kort í myndavélina þína

Sandisk hefur kynnt nýtt kort fyrir myndavélar sem er 16GB. Kortið kemur í verslanir í USA í desember og mun kosta rétt rúma 1000 dollara. Frekar dýrt þegar hægt er að fá 6Gb kort á $199. Verðið hlýtur að lækka fljótlega eftir að kortið kemst á markað.

Einnig var kynnt 12GB kort sem mun [...]

Sólarrafhlöður er líka úr sílikoni

Bændurnir í Sílikondal ætla að leggja áherslu á nýjan búskap í framtíðinni. Framleiðslu á sólararfmagni.

Eftir að hafa verið lengi í hátækniiðnaði eru verkfræðingar og frumkvöðlar í Sílikondalnum farnir að leita á nýjar slóðir. Þeir sjá tækifæri í að leggjast á eitt með að þróa áfram framleiðslu rafmagns með sólar-sellum en hingað til hefur það rafmagn verið umtalsvert dýrara en það sem fæst með brennslu á kolum og gasi. Sílikonmenn reikna með að veltan á sólarrafhlöðum eigi eftir að fimmfaldast á næstu tíu árum úr 11 milljörðum dollara í 51 milljarð. Það er ástæðan fyrir áhuganum. Nú er lagt kapp á að lækka kostnað, auka framboð og nýta þá tækni sem er til staðar.

Thomas Warner

Lesa meira af Sólarrafhlöður er líka úr sílikoni

Auðvelt að týna þessum

Þá er líklega minnsti farsími í heimi kominn á markaðinn. Hann heitir Pantech C300 og er með snertiskjá, MP3 spilara  121 mb í minni og USB tengi. 55 grömm og 6,7 centimetrar. Er þetta ekki það sem koma skal?

Sól-linsur frá NIKE

Íþróttavöruframleiðandinn NIKE hefur hannað og sett á markað í samstarfi við Bausch&Lomb linsur sem henta vel fyrir íþróttamenn. Þessar linsur koma í tveimur litum og er hvor litur hentugur fyrir vissar aðstæður. Grá-grænar eru hentugar fyrir golf, hlaup, þjálfun og útiveru en appelsínurauðar fyrir fótbolta, tennis og fleiri íþróttir. Linsurnar hafa verið prófaðar af [...]

Nýr spilari frá Acer

Acer hefur komið með slatta af nýjungum uppá síðkastið. Nýlega kom á markaðinn frá þeim spilarinn MP-340 og nú hefur sést til nýrrar græju frá þeim sem kallast MP-400. Tækið virðist nokkuð flott  og er á því 3,5″ skjár og það spilar MP3, WMA, DivX, og MPEG-2/4, á því er SD rauf og AV [...]

4 dyra Porsche

Wendelin Wiedeking tilkynnti á dögunum að þeir hjá Porsche væri byrjaðir að prófa nýjan 4 dyra coupe í þessari viku. Bíllinn hefur verið kallaður Panamera og er líklegur til að vera kynntur formlega til sögunnar á bílasýningunni í Genf árið 2009.

P2

Eitthvað verður fengið að láni úr hönnuninn á 911 bílunum en samt eru veigamiklar breytingar þar á. Vélin er frammí. Reiknað er með 3 tegundum af vélum í upphafi. 300 hestafla 6 strokka vél frá Volswagen (3,5 L) og svo 2 átta strokka vélar úr Cayenne bílnum, þ.e. 350 hestafla og svo turobo vélin sem er 560 hestöfl.

Stóra spurningin er sú hvort Porsche nái aftur að þagga niður í efasemdaröddum sem þegar hafa hljómað. Þeir náðu því með Cayenne jeppann, en tilhugsunin um 4 dyra fjölskyldubíl frá Stuttgart er ekki alveg búin að ná hljómgrunni hjá manni…

Lesa meira af 4 dyra Porsche

Blaðsíða 1 af 212